2 dagar til stefnu :)
jæja nú fer óðum að styttast í Londonferðina mína :) Legg af stað núna á föstudagsmorgun....jííííhhhhaaaaa........Mæting kl. 4:55 í vinnuna mína í Gardabæ. Þaðan er ferðinni heitið á Keflavíkurflugvöll. Við ætlum að vera komnar fyrir 6 því þá fáum við ókeypis morgunmat. Síðan höfum við alveg heila 3 tíma í fríhöfninni. Enda er það ekkert lengi að líða. Sérstaklega þegar maður þarf að fara að endurnýja allt make uppið.....Annars erum við 14 konur sem erum að fara saman í verslunarferð :) Veit að það er komin solítill skjálfti í Svenna greyið, en honum líst ekkert á blikuna. Hann hefur nú góða reynslu af mér og silfurlitaða vini mínum. Og ég skil hann ósköp vel. En ég er nú búin að lofa honum að haga mér vel og eyða ekki öllu sparifénu á þremur dögum :)
Nei....ég get þetta....ég kaupi bara það sem mig nauðsynlega vantar.... :) haft orðrétt eftir Svenna kallinum.
Annars erum við að skoða íbúðir á fullu núna og það svona heldur aðeins aftur af mér. Vorum einmitt að skoða íbúð í gær í Salahverfinu í Kópavoggi. Okkur leist mjög vel á hana, en þar sem við erum orðin svo kröfuhörð þá var hún ekki alveg það sem ég myndi vilja kaupa. Stofan var of lítil og húsið ekki alveg nógu sjarmerandi svona séð utan frá.
